Hitið ofninn í 180°C. Nú getið þið annað hvort tekið til form sem er 18 sentímetra stórt eða 22 sentímetra. Ef þið veljið 18 sentímetra formið þá verður botninn þykkari, og þá er tilvalið að skera botninn í tvennt og búa til tvö lög með kremi á milli og ofan á. Ég valdi 22 sentímetra form og hafði kökuna einfalda. En munið að smyrja formið vel.
Blandið olíu, vanilludropum, sykri og eggjum vel saman í lítilli skál og setjið til hliðar.
Blandið öllum þurrefnunum vel saman í stórri skál og blandið síðan blautefnunum smátt og smátt saman við. Ekki hæra of mikið, þá verður brúnkan ekki dásamlega blaut og djúsí.
Setjið deigið í form og bakið í sirka 20 mínútur (22 sentímetra form) eða 25-30 mínútur (18 sentímetra form). Kakan má vera aðeins blaut þegar hún er tekin úr ofninum. Leyfið kökunni alveg að kólna áður en hún er skreytt.
Vanillukrem
Blandið sætri dósamjólk og vatni vel saman í skál.
Hrærið vanillubúðingnum saman við og hrærið þar til blandan byrjar að þykkna, í um 1 mínútu. Setjið inní ísskáp.
Þeytið rjómann. Takið búðingsblönduna úr ísskápnum og blandið rjómanum varlega saman við. Skellið þessu aftur inní ísskáp á meðan brúnkan kólnar.
Skreytið brúnkuna með kreminu og fullt, fullt af jarðarberjum. Nammi namm!