Fetaostur mulinn í skál. Kryddjurtum, rifnu sítrónuhýði, ólífuolíu og hvítlauki blandað saman við og kryddað með salti og pipar. Látið standa í nokkrar mínútur. Þá er blöndunni blandað saman við lambahakkið og eggið, hamborgarar mótaðir. Gott er að nota hamborgarapressu. Grillað eða steikt á pönnu við meðalhita þar til borgararnir eru hæfilega steiktir. Borið fram með salatblöðum, tómötum, rauðlauk ásamt fetaostasósu með avókadó.
Fetaostasósa með avókadó:
Öllu blandað saman í matvinnsluvél eða með töfrasprota.
Uppskrift fengin af eldhússögur.com