1200 g kjúklingabringur eða kjúklingalundir
100 g rifinn parmesan ostur
ca 2 dl rifinn mozzarella ostur
1 poki brauðteningar með osti og lauk (142 gr)
ca 20 g fersk basilika, söxuð smátt
ca 20 g fersk steinselja, söxuð smátt
salt & pipar
2 Nesbú egg, pískuð saman með gaffli
ítölsk tómatsósa með basiliku, ca. 600 g
smjör til steikingar
Ofn hitaður í 200 gráður. Ef notaðar eru kjúklingabringur þá eru þær skornar í þrennt á lengdina. Eggin eru pískuð saman í skál. Brauðteningarnir eru muldir smátt í matvinnsluvél og þeim blandað saman við 1 dl af parmesan ostinum, basilikuna, steinseljuna, salt og pipar. Þá er kjúklingnum velt upp úr eggjablöndunni, síðan brauðteningablöndunni. Því næst er kjúklingurinn steiktur upp úr smjöri á pönnu, á öllum hliðum, við meðalháan hita þar til hann hefur náð góðri steikingarhúð. Þá er kjúklingnum raðað í eldfast mót, tómatsósunni helt yfir kjúklinginn og þá er restinni af parmesan ostinum dreift yfir sósuna ásamt rifna mozzarella ostinum. Bakað í ofni við 200 gráður í 15-20 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Síðustu mínúturnar er gott að stilla á grill til þess að osturinn brúnist vel.
Uppskrift fengin af Eldhussogur.com