Blandið smjöri, sykri, eggjum og kaffi saman í stórri skál. Bætið því næst hveiti, lyftidufti og kakói saman við. Blandið mjög vel saman.
Deilið deiginu á milli möffinsforma og ýtið hálfum Æði-bita ofan í hvert form. Bakið í 20 til 25 mínútur og leyfið kökunum að kólna alveg áður en glassúr er settur á.
Glassúr
Bræðið saman súkkulaði, rjóma og smjör þar til allt er vel blandað saman.
Blandið flórsykrinum saman við og hrærið vel. Hellið yfir kökurnar að vild.