Hitið ofninn í 170°C. Stífþeytið eggjahvíturnar í tandurhreinni skál.
Hrærið hveiti og lyftiduft saman í annarri skál. Blandið mjólk og vanilludropum saman í enn annarri skál.
Í fjórðu skálinni hrærið þið síðan saman smjör og sykur. Bætið sýrða rjómanum út í þá blöndu og hrærið vel.
Skiptist síðan á að blanda mjólkur- og hveitiblöndunni saman við smjörblönduna. Að lokum er eggjahvítunum blandað varlega saman við með sleikju.
Setjið herlegheitin í form og bakið í 15 til 20 mínútur. Á meðan er gott að skera Lindt-trufflurnar í tvennt.
Skerið lítið X ofan í hverja bollaköku um leið og þið takið þær úr ofninum. Þrýstið Lindt-trufflu ofan í og horfið á gotteríið bráðna ofan í kökuna. Mmmmm. Kælið kökurnar alveg áður en kremið er sett á.
Krem
Bræðið hvíta súkkulaðið og leyfið því að kólna í þrjár mínútur.
Blandið síðan öllum hráefnum saman og skreytið kökurnar.