Hitið ofninn í 190°C og setjið bökunarpappír á ofnplötur.
Blandið smjöri, 1 1/2 bolla af sykri, eggjum og vanilludropum vel saman.
Bætið hveiti, cream of tartar, matarsóda og salti vel saman við.
Blandið 3 matskeiðum af sykri og kanil saman í lítilli skál.
Skiptið deiginu í 48 hluta. Dýfið hverjum hluta í kanilsykurinn og mótið síðan kúlu úr deiginu. Dýfið kúlunni svo aftur í kanilsykurinn og passið að sykurinn hylji kúluna.
Setjið kúlurnar á ofnplöturnar, fletjið þær létt út með lófanum og bakið í 8 til 10 mínútur.
Leyfið kökunum að kólna alveg, bræðið hvíta súkkulaðið og dýfið þeim ofan í.