100g mjúkt smjör
200-250g Kornax hveiti
1 msk sýrður rjómi
1/3 tsk Salt
100g sykur (má sleppa)
1 Nesbúegg
½ tsk vanilludropar
Bleikur matarlitur
Svartur ætilegur penni
Hitið ofninn í 180°C og setjið bökunarpappír á ofnplötu
Blandið öllu vel saman nema matarlitnum og pennanum auðvitað
Takið smá klípu af deiginu og litið það bleikt
Fletjið restina af deiginu út á hveitilögðum borðfleti
Skerið út hringi úr deginu (hausinn á grísnum) og litla þríhyrninga (eyrun)
Raðið hringjunum á ofnplötuna og raðið þríhyrningunum á eins og sést á myndinni
Búið til litlar kúlur úr bleika deginu og mótið litla hringi úr þvú fyrir trýni
Raðið trýnunum á svínin og gerið 2 rákir fyrir nasir með hníf
Bakið í 7-9 mínútur eða þar til brúnirnar eru farnar að brúnast
Leyfið kökunum að kólna og teiknið síðan augu á sætu grísina með pennanum
Uppskrift fengin af blaka.is - Girnilegir grísir