Blandið saman smjöri, púðursykri og sykri í skál. Bætið því næst eggi og vanilludropum við blönduna.
Blandið hveiti, maizena, matarsóda og salti saman í annarri skál.
Blandið þurrefnum varlega saman við smjörblönduna þar til allt er vel blandað saman. Blandið Kit Kat-bitunum saman við með sleif.
Kælið deigið í að minnsta kosti eina klukkustund.
Hitið ofninn í 170°C og setjið bökunarpappír á ofnplötur. Búið til litlar kúlur úr deiginu og setjið á ofnplötur. Bakið í átta mínútur. Þessar eru góðar bæði sjóðandi heitar og kaldar.