Hitið ofninn í 190°C og smyrjið meðalstórt, hringlaga kökuform.
Blandið hveiti, lyftidufti, kanil og salti saman og setjið skálina til hliðar.
Blandið smjöri og sykri vel saman í annarri skál. Bætið eggjunum saman við, einu í einu, og hrærið vel saman. Síðan er vaniludropunum bætt saman við.
Þurrefnunum er bætt varlega saman við þar til allt er blandað saman. Passið ykkur að hræra ekki of lengi.
Rabarbara er blandað varlega saman við deigið og það síðan sett í kökuformi. Karamellusósunni er síðan hellt yfir kökuna og hún bökuð í 35 til 45 mínútur.