Hitið ofninn í 190°C. Blandið hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti saman í skál og setjið til hliðar.
Blandið sykri og smjöri vel saman. Því næst er eggjunum bætt við, einu í einu.
Skiptist á að blanda kókosmjólk og þurrefnablöndunni við smjörblönduna þar til allt er orðið blandað saman. Bætið þá kókosmjölinu út í og hrærið.
Skiptið deiginu á milli möffinsforma og bakið í 15 til 20 mínútur. Leyfið kökunum að kólna áður en þær eru skreyttar með kreminu.
Krem
Blandið flórsykri og smjöri vel saman.
Bætið öllum hinum hráefnunum saman við og hrærið vel saman.
Skreytið kökurnar með kreminu og drissið smá kókosmjöli ofan á. Þeir sem vilja fá meira súraldinbragð geta rifið smá börk og sett 3 til 4 matskeiðar út í kremið.