Blandið hveiti, matarsóda og salti saman í skál og setjið til hliðar.
Blandið smjöri, rjómaosti, sykri, púðursykri og vanilludropum vel saman í annarri skál í um það bil tvær mínútur. Bætið eggjunum saman við, einu í einu.
Blandið þurrefnablöndunni saman við smjörblönduna en passið ykkur að blanda ekki of vel saman. Blandið hvíta súkkulaðinu, sem þið eruð búin að saxa niður, saman við með sleif.
Setjið plastfilmu yfir skálina og kælið í tvo klukkutíma. Hér er hægt að flýta fyrir með því að setja deigið í frysti í hálftíma.
Hitið ofninn í 180°C og setjið bökunarpappír á ofnplötur.
Búið til kúlur úr deiginu og setjið á ofnplöturnar. Bakið kökurnar í tíu til fjórtán mínútur, eða þangað til þær eru orðna gylltar og fallegar. Leyfið þeim aðeins að kólna og njótið!