Blandið saman hveiti, lyftidufti, maizena og salti saman í skál og setjið til hliðar.
Blandið saman smjöri og eggjahvítum í annarri skál. Hrærið síðan jogúrtinni saman við og þvi næst möndludropum og púðursykrinum.
Blandið þurrefnunum saman við smjörblönduna. Saxið lakkrísrörin og setjið 2/3 af þeim í blönduna og hrærið því saman við með sleif.
Setjið plastfilmu yfir skálina og kælið í ísskápi í tvær klukkustundir eða hálftíma í frysti.
Hitið ofninn í 175°C og setjið bökunarpappír á ofnplötur. Skiptið deiginu niður i 24 bita og búið til kúlur úr bitunum. Setjið kúlurnar á ofnplöturnar og fletjið þær aðeins út. Setjið tvo til þrjá bita af lakkrísnum ofan á og bakið í tíu til tólf mínútur.