Hitið ofninn í 180°C. Myljið hafrakexið í matvinnsluvél og blandið mulningnum saman við smjörið.
Þrýstið hafrakexblöndunni í botn og upp á hliðar á stóru formi sem búið er að smyrja og bakið botninn í 10 mínútur.
Fylling
Blandið sykur og rjómaost vel saman.
Blandið eggjunum saman við og hrærið vel. Blandið því næst salti, vanilludropum og sýrðum rjóma saman við.
Deilið blöndunni á milli tveggja skála. Setjið bláberin út í aðra skálina og hindberin í hina. Blandið varlega saman.
Setjið bláberjablönduna yfir botninn og svo hindberjablönduna yfir bláberjablönduna. Bakið í 45 mínútur.
Skreyting
Blandið öllu vel saman og smyrjið varlega ofan á bakaða ostakökuna.
Setjið kökuna aftur inn í ofn og bakið í 10 mínútur til viðbótar. Leyfið kökunni að jafna sig við stofuhita í hálftíma og inni í ísskáp í 2 tíma áður en hún er hámuð í sig.